Ævinlega sæl og blessuð ! Þá fer að styttast í keppnisferð nr.2 hjá yngra og eldra ári. Yngra árið fer núna helgina 11.nóv og eldra árið helgina eftir. Frekari uppl. um eldra ár þegar nær dregur.
Ekki er komið á hreint hvenær brottför verður nákvæmlega en það verður farið á föstudegi og gist á hótel Cabin.
Að þessu sinni verður keppt í Valshöllinni og raðaðist mótið þannig niður að drengirnir keppa alla sína leiki á laugardeginum, því gott að vera úthvíldur fyrir átökin.
8.20 KA - Fram 2
9.40 Þór - KA
11.00 KA - Hörður
13.40 ÍBV - KA
Heimför ræðst svolítið eftir því hvort fleiri flokkar séu á leið suður þessa helgi, en annars er heimkoma á laugardagskvöldi.
Kostnaður er eftirfarandi
Rúta - 3200 (2000 í niðurgreiðslu + 2000 niðurgreiðsla sem eg misskildi frá síðustu ferð :) )
Gisting - 5500
Máltíð á leið suður og heim + vasapeningur - 3000
Liggur því í 12.000 kr sem greiðist í íslenskri krónu við brottför.
Drengirnir fá úthlutuðum keppnistreyjum en þeir þurfa sjálfir að koma með bláar stuttbuxur og að sjálfsögðu skó. Við gistum á Cabin í uppábúnum rúmum en þeir þurfa að taka með sér handklæði til að sturta sig eftir keppni.
Undirstrika það hversu mikilvægt er að nesta drengina því þetta eru jú svangir kroppar !
Eggert H Sigmundsson tæklar fararstjórastöðuna þetta skiptið.
Nafni minn mun fara þessa ferð með drengjunum.
KA-kveðja Sissi
Margblessuð, við ætlum að taka æfingarleiki við þórsara núna á sunnudaginn.
Við förum inna æfingu hjá þeim kl 12.30-14 í Síðuskóla.
Magnað ef allir myndu mæta í nýju treyjunum sínum :) Að sjálfsögðu eru allir boðaðir.
KA-kveðja
Sissar
Margblessuð, við ætlum að taka æfingarleiki við þórsara núna á sunnudaginn.
Við förum inna æfingu hjá þeim kl 12.30-14 í Síðuskóla.
Magnað ef allir myndu mæta í nýju treyjunum sínum :) Að sjálfsögðu eru allir boðaðir.
KA-kveðja
Sissar
Næstu afhendingar á gjafabréfum fyrir þá sem hafa gengið frá æfingagjöldunum er eftirfarandi: Mánudagur, þriðjudagur og miðvikudagur milli 09:30 og 12:00 hjá Örnu á skrifstofu KA. Einnig á miðvikudag milli 17:00-18:00 í KA-heimilinu.
Til þess að fá afhent gjafabréf þarf að vera búið að ganga frá æfingagjöldum og eru leiðbeiningar hér hvernig það er gert: http://handbolti.ka.is/is/aefingatafla
http://handbolti.ka.is/is/moya/news/afhending-gjafabrefa-fyrir-treyju-og-aefingasett-1
Brottför verður frá KA heimilinu kl 11 á morgun, við munum fara með 5kvk og 6kk í rútu. Mæting kl 10.45.
Drengirnir eiga leik kl 18.40 og 20.40 á föstudeginum. Svo kl 12.20 og 13.40 á laugardeginum.
Keppni fer fram í íþróttahúsinu Kórnum.
Við munum svo fá okkur eitthvað að borða fyrir heimferðina svo heimkoma verður trúlega um kl 21.
Drengirnir fá úthlutuðum keppnistreyjum en þeir þurfa sjálfir að koma með bláar stuttbuxur og að sjálfsögðu skó. Við gistum á cabin í uppábúnum rúmum en þeir þurfa að taka með sér handklæði til að sturta sig eftir keppni.
Svo um að gera að nesta drengina með millimálum og þess háttar.
Kostnaður er 15.000kr
Inní þvi er
Rúta: 7200 Samherji niðurgreiðir svo um 2000kr
Gisting: 3500 - cabin
Matur: 4000
Ef einhver afgangur verður er hann að sjalfsögðu nýttur í næstu ferð.
Greitt skal í peningum við brottför.
KA kveðja sissi