Lokaupplýsingar um suðurferð hjá eldra ári

Brottför á föstudaginn kl. 09.00 frá KA-heimili. Mæting 08.45. 

Áætluð heimkoma er um 19.00 á laugardagskvöld. Síðasti leikur hjá 6.karla er klukkan 12:00 og lagt af stað fljótlega eftir hann. Svanbjört, mamma hennar Alexöndru, kemur með sem fararstjóri og verður mér til halds og trausts.

Ferðin kostar 9.000kr (rúta niðurgreidd að hluta af yngriflokkaráði) og innifalið er: rúta, mótsgjald, gisting, matur á leið suður, kvöldmatur á föstudagskvöldi, morgunmatur og hádegismatur á laugardegi. Greiða skal við brottför í peningum.

Það þarf að hafa með sér dýnu, svefnpoka, kodda, tannbursta og gist verður í veislusal í Vodafone höllinni þar sem við keppum. 

Ég hef fengið staðfestingu frá foreldrum Rakelar, Marenar, Sunnu Dísar og Alexöndru. Hinar stelpurnar sögðust allar ætla með og vonandi er það rétt, væri samt gott að fá staðfestingu frá foreldrum þeirra :)

Ef eitthvað er þá endilega hafið samband við mig í síma 823-8750 eða jon2444@gmail.com

Jón Heiðar


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is