Mótið um helgina - uppfært

Sæl foreldrar,

Leikjaplan kom í gær en það er enn töluvert hringl á því. Eins og staðan er núna og ég vona að hún breytist ekki mikið leggjum við í hann frá KA-heimilinu fyrir hádegi á föstudegi með RÚTU með 5. fl karla og 5. fl kvk - þá er kostnaður ekki eins mikill. Við eigum einn leik á föstudegi í Reykjavík en spilum síðan ansi þétt á laugardeginum og síðasta leik yrði lokið hjá okkur ekki seinna en 16.00 - þá tækjum við rútu heim með sömu flokkum og við fórum suður með.

Gróflega reiknaður kostnaður við ferðina er í kringum 12.000 kr en ég fæ það betur staðfest þegar ég fæ verð á gistingunni og mat. 

Það eru 11 strákar skráðir og förum við því með tvö lið. Mig vantar því amk. 1 fararstjóra, helst tvo. Hægt er að ahfa samband við mig í síma 692-6646 eða í tölvupósti sigurolim@gmail.com

 

Vonandi kemur uppfært leikjaplan í dag og verðið á gistingunni og því svo ég geti sett inn lokapóstinn hérna. 


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is