Mót um næstu helgi 6.fl yngri

Upplýsingar um suðurferð (nánari upplýsingar koma á miðd.)

Brottför: 11:00 á föstudagsmorgun frá KA-heimili - við tökum líklega rútu með 5.flokk kvk.
Kostnaður: 9.000 kr
innifalið: Rúta, kvöldmatur föstudag, morgunmatur, matur á leiðinni heim, keppnisgjald. Borgað við mætingu í peningum til Heimis.

Mæting 10:45

Þar sem við gistum þurfa strákarnir að hafa með sér tilheyrandi dót: dýnu, svefnpoka, kodda, tannbursta. Þá þurfa þeir einnig að hafa með sér vel af nesti fyrir rútuferðirnar, sem og til þess að borða í snarl. Betra að hafa meira en minna!!Nestið skal vera hollt og gott, ekkert sælgæti, gos og súkkulaðikex eða snakk.

Snjalltæki eru ekki leyfileg í ferðinni. Það má taka síma með til þess að hringja heim en alls ekki fara í leiki eða snapchat o.s.frv.. Muna einnig eftir handboltaskóm og stuttbuxum.Varðandi búningamál, þá verða nýju búningarnir ekki komnir og þess vegna bið ég alla þá sem eiga KA treyju að taka hana með. Ég mun taka nokkra auka búninga með fyrir þá sem þurfa.

Tvö lið verða frá KA.

A-lið spilar tvo leiki á föstudag og þrjá á laugardag en B-lið spilar alla sína leiki á laugardag.

Það væri frábært að fá 1-2 liðstjóra með og endilega sendið mér póst á heimirorn@akmennt.is eða skilaboð á facebook hvort þið komist með. Fyrstir koma fyrstir fá :)

Kv Heimir Örn


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is