Húsavíkurferð og næstu mót

Sæl,

enn er stefnt á að fara með eldra árið til Húsavíkur á föstudaginn (31.okt) í æfingarferðina sem talað var um þegar Vestmannaeyjar duttu út. Gunni Nella ætlaði að sjá um skipulagningu á því og um leið og ég fæ einhverjar upplýsingar set ég þær hér inn. 

Annað mál, nú þarf að fara að skrá liðin á næstu mót. Ætla að biðja ykkur að skrá ykkar stelpu á mótið annaðhvort hér að neðan í komment eða senda mér póst á erlahleidur17@hotmail.com. 

Yngra ár leikur helgina 14.-16. nóvember í Hafnarfirði. Haukar sjá um mótið.

Eldra ár leikur helgina 21.-23. nóvember í Kópavogi. HK sjá um mótið. 

kveðja 

Erla Hleiður


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is