NÝ UPPFÆRT: Afhending gjafabréfa á miðvikudaginn milli 16:30-18:30

Afhending gjafabréf fer fram í KA-heimilinu á miðvikudaginn milli 16:30 og 18:30 - Til þess að fá afhent gjafabréf að þá verður að vera búið að skrá iðkandann í gegnum Nóra-kerfið.

Eins og við auglýstum í síðustu viku varð örlítill galli í framleiðslu á nýjum keppnistreyjum fyrir handboltadrengi. Til þess að leysa það á sem farsælastann hátt var tekin sú ákvörðun að allir flokkar drengja hjá KA leika í al-gulum treyjum sem félagið á og skaffar krökkunum fyrir leiki og mót. Hinsvegar fylgir ÆFINGATREYJA sem er gul og blá öllum greiddum æfingagjöldum fyrir strákana. Stelpurnar hinsvegar halda sínu striki og fá afhenta keppnistreyju (sem er einnig hægt að nota sem æfingatreyju).

Til þess að geta fengið þessar treyjur afhentar þarf að koma upp í KA-heimili milli 16:30 og 18:30 á miðvikudaginn og vera búið að skrá barnið í gegnum Nóra-kerfið. Nánari leiðbeiningar um það ferli má sjá hér. Arna Ívarsdóttir, starfsmaður KA, verður á staðnum og getur aðstoðað þá sem eiga í erfiðleikum með að skrá í gegnum Nóra.

 


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is