Flýtilyklar
Handboltaæfingar hefjast skv. töflu á mánudaginn - allir velkomnir
Nú er handboltavertíðin að hefjast eftir sumarfrí. Allir velkomnir í september að koma að prufa.
Yfirþjálfari er Jónatan Magnússon. Símanúmerið hans er 899-0203 og tölvupóstfangið jonni@ka.is. Jonni ætti að vera flestum KA-mönnum kunnugur og var mikill happafengur að fá hann aftur heim til Íslands frá Noregi til þess að starfa fyrir KA.
Til gamans má geta að stórglæsileg og ný keppnistreyja fylgir greiddum æfingagjöldum fyrir yngstu krakkana í vetur en þau eldri fá æfingasett.
Nánari upplýsingar má einnig finna inn á handbolti.ka.is - og ef smellt er á æfingatöflu þá koma þar allar nánari upplýsingar! Að venju fer skráning iðkenda fram í gegnum Nóra eða ka.felog.is
Leit
- Hægri dálkur: Flokka síður
Skráning á póstlista
Fáðu fréttir og tilkynningar sendar með tölvupósti