Akademía Akureyrar Handboltafélags

Akademía Akureyri Handboltafélags fyrir krakka í 5. Flokki

 

Nú er að fara af stað fjögurra vikna handboltakademía fyrir leikmenn í 5. flokki karla og kvenna (fyrir krakka fædd 2002 og 2003).

Æft verður þrjá morgna í viku í KA-heimilinu undir handleiðslu Ingimundar Ingimundarsonar. Boðið verður upp á léttan morgunverð eftir æfinguna, áður en haldið er í skólann.

 

Æft mánudag-, þriðjudag-, og fimmtudagsmorgna frá 23. nóvember næstkomandi til 17. desember. Samtals 12 æfingar.

Æfingar eru frá 06:30-07:30 í KA-heimilinu og hefjast þær 23. nóvember.

 

Kostnaður er 10.000kr og eru takmörkuð pláss í boði í Akademíuna. Skráning fer fram hjá Siguróla (siguroli@ka.is) eða í síma 462-3482.

 

Einstaklingsmiðuð tækniþjálfun frá Silfurverðlaunahafanum Ingimundi – tilvalið fyrir alla þá sem vilja bæta sig í handbolta.


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is