Góðan daginn.
Á fimmtudaginn næsta verður foreldrafundur vegna 7. og 8. flokks kvk í KA heimilinu. Fundurinn hefst klukkan 19:30.
Einnig er komin facebook síða fyrir hópinn á slóðinni: https://www.facebook.com/groups/896670470415395/
Ef þið hafið einhverjar spurningar, sendið mér þá tölvupóst á netfangið
stefan@ka.is
Góðan daginn.
Fyrir það fyrsta, þar sem skólarnir eru í fríi sökum vetrarfrís er frí hjá 7. og 8. flokk kvenna á föstudaginn. Hins vegar ætlum við að prófa að hafa æfingu á laugardagsmorgun fyrir 7. flokk á venjulegum tíma. Um að gera að nýta sér það ef fríið er alveg að fara með ykkur.
Síðan er það NORA kerfið okkar. Ef þið opnið fréttina að fullu fáið þið allar upplýsingar sem þið þurfið um það.
Við ætlum að vera með átak í skráningu iðkenda í Nóra. Alla þriðjudaga í nóvember ætlar Sigga gjaldkeri að vera í KA heimilinu milli kl. 17-18 og aðstoða foreldra sem eiga eftir að skrá börnin sín í Nora kerfið. Það er mjög áríðandi að allir foreldrar og forráðamenn skrái alla sína iðkendur í kerfið sem fyrst, bæði uppá utanumhald hjá okkur og einnig til að við fáum styrki frá ÍSÍ og Lottó og fleira. Með greiðslu æfingargjalda er svo hægt að dreyfa og/eða semja um.
Þið getið nálgast allar upplýsingar um skráningakerfið undir æfingartafla hér að ofan eða með því að mæta í KA heimilið á milli kl. 17 og 18 á þriðjudögum í Nóvember.