Vertíðarlok

Nú erum við komnir í sumarfrí frá hefðbundnum æfingum. Við ljúkum vertíðinni með glæsilegu lokahófi í KA heimilinu. Það verður fimmtudaginn 22. maí kl. 18:30. Þar verða teknar myndir af krökkunum sem síðar verða aðgengilegar á heimasíðunni, farið verður í leiki og hófinu slitið með pizzuveislu frá Greifanum.

Við þjálfararnir þökkum kærlega fyrir veturinn og vonumst til að sjá alla aftur í haust þegar skólarnir hefjast.


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is