Fáðu fréttir og tilkynningar sendar með tölvupósti
Flýtilyklar
Selfossferð upplýsingar
Mæting 7:45 laugardaginn 25. apríl. Brottför klukkan 08:00.
Áætluð heimkoma er um 21.30 á sunnudagskvöldi.
Ég ætla biðja fararstjórana að melda sig hér fyrir neðan í commentum með nafni og símanúmeri:)
Það komast allir foreldrar með í rútuna sem töluðu við mig á fundinum.
Við förum með 4 lið, það er spilað í tveim húsum á Selfossi. Vallaskóla og íþróttahúsi FSU. ( Þau eru nánast hlið við hlið)
KA 4 Danmörk: Jón Óli, Villi, Viktor, Alexander, Sigmar, Ívar og Heiðar. Þeir spila kl. 15:00, 15:36 og 16:12 á laugardegi í FSU og á sunnudegi kl. 8:12, 8:48 og 9:24 í Vallaskóla.
KA 1 Frakkland: Marinó, Hákon, Skarpi, Jóhannes, Ari og Víðir. Þeir spila kl. 15:24, 16:00 og 16:36 í Vallaskóla á laugardegi og 12:12, 12:48 og 13:24 í FSU á sunnudegi.
KA 3 Pólland: Kári, Jón Ólafur, Mundi, Óskar, Stefán og Þormar. Þeir spila kl.17:24, 18:00 og 18:36 í Vallaskóla á laugardeginum og á sunnudegi kl. 10:00, 10:36 og 11:36 í FSU.
KA 2 Spánn: Logi, Dagur Árni, Heiðmar, Jens, Steinþór og Hjalti. Þeir spila kl. 15:36, 16:12 og 16:48 í Vallaskóla og 12:24, 13:00 og 13:36 á sunnudeginum í FSU.
Ef að ég hef óvart gleymt að skrá einhvern snilling í lið þá látið þið mig vita strax!!!
Ferðin kostar 9000 kr og innifalið er: rúta, mótsgjald, gisting, kvöldmatur á laugardagskvöldi, morgun- og hádegismatur á sunnudegi og máltíð á leiðinni heim. Greiða skal við brottför í peningum.
Þar sem við gistum þurfa strákarnir að hafa með sér tilheyrandi dót: dýnu ( það er ekki hægt að fá lánað), svefnpoka, kodda, tannbursta. Þá þurfa þeir einnig að hafa með sér vel af nesti fyrir rútuferðina, sem og til þess að borða í snarl. Betra að hafa meira en minna!!Nestið skal vera hollt og gott, ekkert sælgæti, gos og súkkulaðikex eða snakk.
Á laugardagskvöldinu verður kvöldvaka með Friðrik Dór kl. 20:00.
Að taka með síma (ipad ekki leyfðir) eru algjörlega á ábyrgð foreldra. Ég veit að strákarnir eru mjög ungir og vilja sumir hringja oft heim. En í svona ferðum er ekki óalgengt að svona hlutir týnist. Muna einnig eftir handboltaskóm og stuttbuxum ( þeir sem eiga búning koma með hann) hinir fá lánað.
Það væri frábært ef einhver lumaði á góðri DVD mynd fyrir rútuna (alls ekki bannaða :). Ef eitthvað er, má heyra í mér: Heimir 862-6352 eða senda mail á heimirorn@akmennt.is