Síðasta æfing vetrarins á morgun, föstudag :)

Ég vil byrja á því að þakka þeim sem komu á gistikvöldið fyrir frábæra skemmtun. Stelpurnar voru eins og englar eins og þær eru búnar að vera í allan vetur og gekk þetta mjög vel :) Ekki var farið að sofa fyrr en rúmlega 3 en það var einungis vegna þess að fjörið var það mikið!

Við ætlum að hafa æfingu á morgun, föstudag, klukkan 4 í KA-Heimilinu og er þetta síðasta æfing vetrarins. Svo er lokahófið á miðvikudaginn næsta klukkan 18:00 í KA-Heimilinu og hvet ég alla foreldra að koma með og grípa systkini og aðra fjölskyldumeðlimi endilega með!

Takk fyrir frábæran vetur, það er búið að vera lærdómsríkt og mikil skemmtun að þjálfa þessa snillinga sem eru í flokknum.

Jón Heiðar


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is