Nánar um gistikvöldið

Við ætlum að gista í kvöld í KA-Heimilinu saman og með 5.fl kvenna. Það er mæting 19:30 og borðum við pizzu fljótlega eftir það. Síðan er æfing rúmlega 9 og eftir það frekar frjálst. Það þarf að koma með rúmföt, morgunmat, íþróttaföt, handklæði og nesti. Nestið er alveg frjálst í þetta skiptið og ákveðið þið foreldrar það bara fyrir stelpurnar. Kostnaðurinn er 0.kr og er um að gera að mæta sem flestar og enda tímabilið á skemmtilegan hátt á gistikvöldi :)

Jón Heiðar


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is