Lokaupplýsingar fyrir eldra árið og liðin!

Suðurferð eldra árs 6. flokks KA 22.-23. nóvember 2014 

Þá er komið að annari suðurferð vetrarins hjá strákunum. Vegna ferðatilhögunnar annarra flokka hjá KA förum við af stað 08.00 á laugardagsmorgni frá KA-heimilinu en mæting er 07:30. Við keyrum beint suður og förum á leik Akureyrar og Stjörnunnar í Olís-deild karla í Garðabæ. Það verður mikið fjör og eftir hann stefnum við á að láta keyra okkur á einhvern pítsa/kjúklingastað og fá okkur kvöldmat. Við gistum í Árseli (félagsmiðstöð í Árbæ) sem er í 5. mínútna gangi frá Fylkisheimilinu sem við keppum í.

Bæði lið hefja leik á sunnudagsmorgni, KA1 klukkan 08.00 og KA2 kl 08.30. Síðan er spilað nánast í einum spreng til klukkan 13.00 og þá hafa bæði lið lokið keppni eftir fjóra leiki hvort. Eftir leikina fáum við okkur að borða og förum heim með 5fl. kvk. Áætluð heimkoma er um kvöldmat á sunnudag. 

Þar sem við gistum þurfa strákarnir að hafa með sér tilheyrandi dót: dýnu, svefnpoka, kodda, tannbursta. Þá þurfa þeir einnig að hafa með sér vel af nesti fyrir rútuferðirnar, sem og til þess að borða í snarl. Betra að hafa meira en minna!! Nestið skal vera hollt og gott, ekkert sælgæti, gos og súkkulaðikex.

Snjalltæki eru sem fyrr bönnuð en takkasímar til þess að hringja heim eru leyfilegir. Muna einnig eftir handboltaskóm og stuttbuxum.

Ferðin kostar 12.000krinnifalið er matur á laugardagskvöldi og sunnudagshádegi, gisting, mótsgjald, vasapeningur á leiðinni heim og rútuferðin. Þetta skal greiðast við brottför í peningum.

KA1: Grímur, Alex, Örn, Jósep, Kári G, Kári H, Tómas og Einar. Þeir leika 08.00 við KR, 09:30 við Stjörnuna, 11:00 við Fjölni og 12:30 við HK
KA2: Haukur, Kári Þór, Finnur, Bjarki, Sigurjón, Aðalbjörn, Hilmar og Björn. Þeir leika: 08:30 við HK, 09:30 Hauka, 10:30 við Stjörnuna og 12.00 við Fram

 Gott er að hafa með sér DVD myndir í ferðina suður. Upplýsingar um liðsskipan er að finna inn á síðunni okkar: handbolti.ka-sport.is/6-fl-karla

Ef eitthvað er, má heyra í okkur þjálfurum: sigurolim(hjá)gmail.com eða 692-6646 

Siguróli og Sigþór


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is