Jólafrí

Sælir foreldrar,

Síðasta æfing þessa árs hjá 6. flokki karla er núna á miðvikudaginn. Við æfum sem sagt þriðjudag og miðvikudag í þessari viku og tökum síðan gott jólafrí.

Æfingar hefjast aftur eftir jól þann 6. janúar.

Þá vildi ég einnig láta vita að tilfelli af lús kom upp hjá tveimur drengjum í flokknum. Ólíklegt er að þetta smitist á handboltaæfingu en betra er að hafa augun opin fyrir þessum leiðindavágest. 

Kveðja,

Siguróli og Sigþór


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is