Fáðu fréttir og tilkynningar sendar með tölvupósti
Flýtilyklar
Ferðatilhögun eldra árs um helgina - UPPFÆRT
Brottför: 09:30 á föstudagsmorgun frá KA-heimili - við tökum rútu með 6. flokki Þórs :)
Kostnaður: 11.500kr innifalið: Rúta, kvöldmatur föstudag, morgunmatur, matur á leiðinni heim, keppnisgjald. Borgað við mætingu í peningum til Siguróla.
Mæting 09:15
Þar sem við gistum þurfa strákarnir að hafa með sér tilheyrandi dót: dýnu, svefnpoka, kodda, tannbursta. Þá þurfa þeir einnig að hafa með sér vel af nesti fyrir rútuferðirnar, sem og til þess að borða í snarl. Betra að hafa meira en minna!!Nestið skal vera hollt og gott, ekkert sælgæti, gos og súkkulaðikex eða snakk.
Snjalltæki eru sem fyrr bönnuð en takkasímar til þess að hringja heim eru leyfilegir. Muna einnig eftir handboltaskóm og stuttbuxum.
Tvö lið verða frá KA.
KA1 sem leikur á laugardagsmorgni kl. 8:30, 9:30, 11:30 og 12:30: Garðar, Siggi B, Haraldur Máni, Siggi H, Ísak Óli, Aron Orri
KA2 sem leikur á föstudegi kl. 16:00, 17:00, 19:00 og 20:00: Valur, Ernir, Óskar, Arnþór, Ari Valur, Dagur og Breki
Gott er að hafa með sér DVD myndir í ferðina suður.
Ef eitthvað er, má heyra í okkur þjálfurum: sigurolim(hjá)ka.is eða 692-6646
Svo vantar mig enn einn liðstjóra? :)