Suðurferð eldra árs 6.-7.feb

Brottför föstudaginn 6.feb kl. 10:00 frá KA-heimilinu, mæting 9:40.

Áætluð heimkoma er um 19:00 á laugardagskvöldið. Kostnaður er 12.500 kr sem greiðist við brottför, innifalið er: rúta, gisting, mótsgjald, matur á leið suður, kvöldmatur, morgunmatur og matur á norður leið. 

Gott er að stelpurnar hafi nesti með sér fyrir föstudaginn og þar sem leikirnir eru spilaðir þétt á föstudagskvöldinu er nauðsynlegt að hafa með sér ávexti og eitthvað létt til að grípa í. 

Við gistum í Hraunvallaskóla svo stelpurnar þurfa að hafa meðferðis:

  • dýnu, sæng/svefnpoka, kodda
  • náttföt, tannbursta, tannkrem, snyrtidót
  • íþróttaskó, sokka, stuttbuxur, utanyfirpeysu, brúsa
  • handklæði, nærföt/föt til skiptanna

Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir ekki hika við að hafa samband. :) 

kveðja

Erla Hleiður 848-2721

 


comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is