Fyrstu mót vetrarins

Ævinlega foreldrar !
 
Komið er að því að yngra árið haldi í sína fyrstu keppnisferð vetrarins. Mótið sem þeir sækja er haldið af HK 7-9. október.
Drengirnir hefja keppni seinnipart föstudags svo brottför mun vera í kringum hádegi, þeir ljúka svo keppni á laugardegi svo heimkoma mun vera laugardagskvöld. Ferðamáti verður rúta að venju, við munum borða saman á leiðinni suður og sömuleiðis um kvöldið, morgunmat verður einnig skaffað.
Ég er ekki alveg orðinn klár á því hvort tekist hafi að panta gistingu á Cabin að svo stöddu en ef það tækist ekki yrði gisting á vegum HK, kemur í ljós von bráðar.
Óska hér með eftir einum fararstjóra með mér í þessa ferð þar sem við munum tefla fram einu liði að svo stöddu. Endilega bjóða sig fram hér fyrir neðan.
 
Eldra árið mun svo fara á mót í eyjum 14-16. október, einhverjir voru búnir að bjóða sig fram sem fararstjórar í þá ferð en væri flott að fá þá staðfesta hér fyrir neðan, stefnan er að fara með tvö lið þar svo það yrðu tveir fararstjórar. Sú ferð er enn í vinnslu svo meira um hana síðar.
 
Ef eitthvað er óljóst eða spurningar vakna ekki hika við að skilja eftir línu hér eða senda þá á mig persónulega. Mun líklegra að ég nái að svara hér eða í sms en með hringingu.
 
KA-kveðja Sissi - 8925845 - sigthorarni@icloud.com

comments powered by Disqus

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is